HEIM NÝIR BÍLAR VERÐLISTI NOTAÐIR FJÁRMÖGNUN NETFÖNG ÞJÓNUSTA UMBOÐSMENN  

  

 

   

 

   
    Alto er hugsaður fyrir þá sem eru að leita að hagkvæmum og vel hönnuðum smábíl þar sem fara saman fallegt útlit og lítil mengun. Alto er byggður á hugmyndafræði Suzuki um visthæfa bíla framtíðar. Við hönnun á Alto var haft til hliðsjónar að búa til visthæfan bíl fyrir umhverfið án þess að fórna nokkru í aksturseiginleikum, notagildi og afköstum.     

    


  Splash er bíll sem sameinar marga kosti. Gott rými, hátt aðgengi, góðir aksturseiginleikar og lítil mengun gera Splash að frábærum kosti. Splash er fáanlegur með 1,0 lítra og 1,2 lítra bensínvélum, meðaleyðslan er aðeins 5 lítrar á hundraði beinskiptur og 5,9 lítrar á hundraði sjálfskiptur.  

  Swift er nýr bíll frá grunni hannaður í Evrópu fyrir Evrópumarkað. Swift er bíll sem setur alveg ný viðmið í hönnun, útliti og aksturseiginleikum minni fólksbíla.  Hvað stærð varðar þá er hann heldur stærri en Yaris en minni en Golf.   

  SX4 er nýr Sportjepplingur frá Suzuki, bíll með kröftugt útlit, mikla veghæð og fjöðrun fyrir fjölbreyttar aðstæður. "Crossover" hönnun SX4 gefur ökumanni og farþegum meira rými, hærra aðgengi og betri yfirsýn. Intelligent AWD drifbúnaður SX4 gefur möguleika á framdrifi, sjálfvirku sítengdu fjórhjóladrifi og læstu fjórhjóladrifi.  

    Kizashi nýr bíll í millstærð frá Suzuki, bíll með sportlegt  og yfirvegað útlit og einstaklega vandaða og vel útfærða innréttingu. Í Kizashi sameinast frábærir aksturseiginleikar og ánægja í akstri, sem má þakka þrotlausum og ítarlegum prófunum og fínstillingu á aksturshæfni á vegum bæði í Evrópu og Norður Ameríku.  

    Jimny hefur sannað sig sem traustur kostur fyrir þá sem þurfa alvöru jeppa með háu og lágu drifi en er annt um hagkvæman rekstur og lága bilanatíðni. Nú bjóðum við Jimny í breyttri útgáfu með aflmeiri VVT vél og meiri búnaði.  

  Grand Vitara, er lúxusjeppi byggður á grunni Vitara og Grand Vitara frá Suzuki einum stærsta bílaframleiðanda Japans. Grand Vitara er alvöru jeppi af réttri stærð fyrir nútíma fólk sem gerir miklar kröfur um aksturseiginleika, öryggi og hagkvæman rekstur. Grand Vitara nýtur sín vel hvort sem er á þjóðvegum, í bæjarakstri eða á fjallaslóðum.  

   

© 2012 Suzuki bílar hf