HEIM NÝIR BÍLAR VERÐLISTI NOTAÐIR FJÁRMÖGNUN NETFÖNG ÞJÓNUSTA UMBOÐSMENN  

  

 

 

Kizashi Innrétting Myndagallerí Verð og búnaður Tækni Litir

 

Kizashi, nýr bíll í millstærð frá Suzuki, bíll með sportlegt  og yfirvegað útlit og einstaklega vandaða og vel útfærða innréttingu. Í Kizashi sameinast frábærir aksturseiginleikar og ánægja í akstri, sem má þakka þrotlausum og ítarlegum prófunum og fínstillingu á aksturshæfni á vegum bæði í Evrópu og Norður Ameríku. Á Japönsku merkir Kizashi "tákn um eitthvað stórkostlegt sé í vændum". Eins og nafnið gefur til kynna endurspeglar Kisazhi framtíðarsýn Suzuki um bílaframleiðslu og hönnun.

 

       

  Kizashi SDLX. Vél 2,4 lítrar 178 hestöfl. CVT sjálfskipting með 6 gíra handskiptimöguleika. Drifbúnaður; hægt að velja á milli framhjóladrifs eða sítengds fjórhjóladrifs.
 

 

Staðalbúnaður m.a. fjarðlægðarskynjari, regnskynjari á þurrkum, rafstýrðar stillingar á bílstjórasæti með þrem minnisstillingum, vönduð hljómtæki með átta hátölurum, USB tengi, lykillaus ræsing, sjálfvirk dimming á baksýnisspegli, tvívirk miðstöð/loftkæling, hraðastillir (Cruise Control), sóllúga og 18 tommu álfelgur.

   
 
 
 

Mikið er lagt upp úr öryggi í Kizashi. Meðal staðalbúnaðar eru 6 öryggisloftpúðar, 3ja punkta bílbelti við öll sæti, styrktarbitar í hurðum, ISO-FIX festingar fyrir barnabílstóla og þokuljós bæði að framan og aftan. Kizashi er búinn öflugu hemlakerfi með ABS og EBD hemlajöfnun os ESP stöðugleikakerfi.

 
 
   
   
                     © 2012 Suzuki bílar hf