HEIM NÝIR BÍLAR VERÐLISTI NOTAÐIR FJÁRMÖGNUN NETFÖNG ÞJÓNUSTA UMBOÐSMENN  

  

 

 

Grand Innrétting Myndir Verð og búnaður Tækni Litir

   
   
Grand Vitara, er lúxusjeppi byggður á grunni Vitara og Grand Vitara frá Suzuki einum stærsta bílaframleiðanda Japans. Grand Vitara er alvöru jeppi af réttri stærð fyrir nútíma fólk sem gerir miklar kröfur um aksturseiginleika, öryggi og hagkvæman rekstur. Grand Vitara nýtur sín vel hvort sem er á þjóðvegum, í bæjarakstri eða á fjallaslóðum. Undir glæsilegri yfirbyggingu leynist sterkbyggð grind, aflmikil vél og fullkomið fjórhjóladrif með háu og lágu sídrifi með læsingu á milli fram og afturhjóla. Það skiptir ekki máli hvort þú ert í borgarumferðinni, eða uppi á fjöllum, einstakir aksturseiginleikar Grand Vitara gera aksturinn ánægjulegan.
   
 

4H Sídrif.  Drif fyrir venjulegar aðstæður þar sem togkrafturinn skiptist á milli fram og afturhjóla 47:53.

   
 

4H Læst drif. Fyrir erfiðari aðstæður t.d. djúpan snjó og utanvega akstur. Jafnt átak á milli fram og afturhjóla.
 

4L Lágt læst drif. Helmingi lægri niðurgírun. Fyrir mjög erfiðar aðastæður.   Grand Vitara er á heilli grind sem er áföst við undirvagninn. Grindin gefur aukinn styrk og betri aksturseiginleika hvort sem er á vegum eða utan vega.  
 
 
 

Mikið er lagt upp úr öryggi í Grand Vitara. Meðal staðalbúnaðar eru 6 öryggisloftpúðar, 3ja punkta bílbelti við öll sæti, styrktarbitar í hurðum, ISO-FIX festingar fyrir barnabílstóla og þokuljós bæði að framan og aftan. Grand Vitara er búinn öflugu hemlakerfi með ABS og EBD hemlajöfnun.

 
   
     
   
                     © 2012 Suzuki bílar hf