Suzuki Alto er hugsaður fyrir þá sem eru að leita að hagkvæmum og vel hönnuðum borgarbíl þar sem fara saman fallegt útlit og lítil mengun. Alto er byggður á hugmyndafræði Suzuki um visthæfa bíla framtíðar. Við hönnun á Alto var haft til hliðsjónar að búa til visthæfan bíl fyrir umhverfið án þess að fórna nokkru í aksturseiginleikum, notagildi og afköstum. Stærð Alto og létt yfirbygging (Alto er minnsti bílinn í flota Suzuki) gera Alto að einum umhverfisvænsta bílnum á markaðnum.






