|
|
Suzuki
Swift er nýr bíll frá grunni hannaður í Evrópu fyrir Evrópumarkað.
Swift er bíll sem setur alveg ný viðmið í hönnun, útliti og
aksturseiginleikum minni fólksbíla. Hvað stærð varðar þá er
hann heldur stærri en Yaris en minni en Golf. Swift kemur með
1,3 og 1,5 lítra bensínvélum og 1,3 lítra Dieselvél. Allar gerðirnar eru
einstaklega vel búnar svo sem með 15 tommu felgum, sex
öryggisloftpúðum, innbyggðum hljómtækjum með sex hátölurum og
stillingum í stýri. ABS hemlum, rafhitun í sætum og útispeglum auk
margs annars. GLX gerðin er auk þess búin loftkælingu, álfelgum,
þokuljósum og lykillausu aðgengi og ræsingu. |